Á alltaf að svekkja mann með því að gefa manni forsmekkin á góða veðrinu á vorin!:( Svo er bara komin skítakuldi aftur.... Allavegna geta mamma mín amma og Sigga ekki kvartað undan kulda, þar sem þær eru á kanarý í ábyggilega 20° hita. Sé alveg ömmu mína fyrir mér;) með varalit í svaka fínni blússu og SKOÐAR ALLT!! híhí... Ég ætla bara að njóta mín í sólinni í sumar, við Júlli og Sigga ætlum til Tenerife, í viku-10 daga:)
Já og á meðan hún mamma mín stöðvastjóri er í burtu er ég bara staðgengill á meðan með honum Árna mínum:) Svona kannski einum of mikið sem hefur skeð samt á 2 dögum, held að stærsti partur á að vera stöðvastjóri er það að hafa starfsfólkið í lagi, eða æ hvernig segir maður þetta? mórallin verður að vera ok svo að allt gangi... Og að vera með gommu af unglingum í vinnu getur verið.... jáhh svona strembið stundum:S
Samt sem áður ætlum við ekki að láta neinn geta sett neitt útá okkar Stöðvastjórasamvinnu:):) hey heyr:)
Núna þarf ég að sökkva mér oní skólabækurnar! brjálað að gera;)
líf og fjör
19. febrúar 2008 klukkan 19:34
Aldís Ólöf Júlíusdóttir Engin athugasemd
Og ég rótaði eitthverju;) Svar: Í Postulasögunni 13:38 segir „Það skuluð þér vita, bræður, að yður er fyrir Hann boðuð fyrirgegning syndanna.“
Hvað er fyrirgefning og hvers vegna þarf ég hennar með? Sögnin ‘fyrirgefa’ merkir að má burt eða eyða, gefa upp sakir, strika út skuld. Þegar við gerum einhverjum rangt til, leitum við fyrirgefningar til að endurnýja eðlilegt samband. Fyrirgefning er ekki veitt vegna þess að einhver verðskuldi fyrirgefningu. Enginn á skilið að hljóta fyrirgefninu. Fyrirgefning á rót sína í kærleika, miskunnsemi og göfuglyndi. Fyrirgefning er ákvörðun um að láta annan ekki gjalda þess að hafa gert eitthvað á hluta þinn.
Biblían segir okkur að við höfum öll þörf fyrir fyrirgefningu Guðs. Öll höfum við syndgað. Prédarinn 7:20 segir: „Enginn réttlátur maður er til á jörðinni, er gjört hafi gott eitt og aldrei syndgað.“ Í Fyrsta Jóhannesarbréfi 1:8 segir: „Ef vér segjum: „Vér höfum ekki synd“, þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss.„ Endanlega er öll synd uppreisn gegn Guði (Sálmarnir 51:4). Af þeim sökum höfum við brýna þörf fyrir fyrirgefningu Guðs. Séu syndir okkar ekki fyrirgefnar, munum við um alla eilífð þjást vegna afleiðinganna af syndum okkar (Mattheus 25:46; Jóhannes 3:36).
Að fyrirgefa einstaklingi sem hefur gert á þinn hlut, er einskonar frelsun fyrir mann sjálfan. Eins og með mig ég hef haldið mínu lífi áfram ánægð og svo hamingjusöm, með því að losa mig við þá byrgði að vera reið og bitur útí eitthvern;)
13. febrúar 2008 klukkan 11:39
Aldís Ólöf Júlíusdóttir Engin athugasemd
það eru bara 8 dagar til jóla;) núna fer stressið að svífa yfir allt;)
Þetta er búið að vera frábær helgi, öll fjölskyldan var saman komin allar systurnar 4 saman komnar og börn okkar;) Borðuðum hangikjöt og horfðum á helling af videoi;) rosalega kosý, nema þegar það var barist um bestu sætin, enda vorum við mörg hehe og bara einn lazyboy;) Svo í gærkvöldi fórum við öll út að borða;) Mamma ákvað að senda okkur út að borða og við fórum á Ólafshús og borðuðum á okkur gat. Þannig að þetta var mjög góð helgi og næsta verður en betri því þá styttist en meira í jólin;) Ég er búinn að kaupa næstum allar jólagjafirnar og er að fara senda þær frá mér;)
16. desember 2007 klukkan 11:20
Aldís Ólöf Júlíusdóttir 2 athugasemdir
Samt ekki alveg blond blond, það var ekki hægt því að þá hefði það orðið bara pissugult víst. Þannig að ég sat í næstum 4 tíma og lét setja mörghundruð ljósar strípur í mig þannig að þetta er ljóst og með smá dökkum strípum;) Kemur sko bara vel út;) hendi mynd inn fyrir ykkur fljótlega;)
13. desember 2007 klukkan 20:46
Aldís Ólöf Júlíusdóttir 1 athugasemd
Ég er búinn aðv era velta mér uppúr þessu núna í 2 eða 3 daga pffff, er að fara í klippingu og litun á morgun og langar að prufa eitthvað nýtt, bara á það að vera dökkt eða ljóst? hehe, það kemur bara í ljós, kannski geri ég þetta í eitthverjum æðibunugangi á morgun, hver veit:)
Jább jább;) eru ekki allir komnir í jólaskap? reyndar er þetta eitthvað að koma til hjá mér, jólalög útum allt og allir að kaupa gjafir og skemmtilegt;)
Ég verð að vinna eins og asni fram til áramóta, samt er það ég sem geri vaktarplanið.... össss...... ég setti mig í frí í 2 daga svo náttl er frí 25 des;) Svo er það aðalmálið að Páll Óskar verður með ball 30 des hérna í skagafirðinum, ég þangað;) og taka því svo bara rólega með fjölskyldunni á gamlársdag;)
Er ég ekki orðin duglegari að blogga hérna;)?? það verður allavegana ekki mikið hægt að tuða í mér núna;)
Ætla að halda áfram að vinna :S líf og fjör;)
12. desember 2007 klukkan 23:23
Aldís Ólöf Júlíusdóttir Engin athugasemd
Já maður aldís ætlar að rembast við að vera duglegari að blogga hérna.....
Allt gengur sinn vanagang og bara ljómandi að búa heima hjá mömmu og pabba, það tekur sinn tíma að venjast því þó. Ég er í gamla herberginu mínu,,, úúú góðir tímar;) heheheh.... Þið sem þekkið mig þið vitið hvað ég á við!;) hehe....
Svo að vinnuni, ég og Sigga systir vorum að massa söluna á ferrari bílunum hehe,, það er sölusamkeppni á milli Shell stöðvanna og sú stöð sem hækkar mest í sölu á bílunum fær 10 þús kr gjafabréf fyrir hvern og einn starfsmann;););) keppnisskapið alveg í 5 gír...
10. desember 2007 klukkan 22:21
Aldís Ólöf Júlíusdóttir 6 athugasemdir
Núna er ég farin að vinna sem vaktstjóri á Shellsport "já sæll" heheh;) mjög fín vinna, bara anskotans freistingar útum allt!!!! ef maður ætlar að halda þessari líkamsrækt áfram;)
Bara aðra vikuna sem mamma tók við rekstrinum þá var brotist inn um nóttina, stolið helling af sígarettum og öðru, ógeðslega ömurlegt :S mamma greyið alveg í rusli yfir þessu, en það er ekki hægt að kenna sér um svona lagað sem var skipulagt alveg frá a-ö.
Jebb jebb, ég virðist ekki vera í þessum jólafýlingi eins og allir eru að komast í, ég jólabarnið er svo slétt sama núna um þessi jól, virðist bara allt sem hefur skeð vera að hafa áhrif á allt, anskotans. Ég er þó búinn að ganga frá lagalegu hliðinni gagnhvart því, ekki orð um það meir hér!!
Jæja þýðir ekki að halda svona áfram að hanga í tölvunni, ætla að fara drulla mér á fætur og fara að vinna, ekkert annað betra að gera!!
Svo falleg mynd var að láta hana fylgja;)
09. desember 2007 klukkan 11:19
Aldís Ólöf Júlíusdóttir 1 athugasemd
Já skulum bara segja að ástæðan fyrir því að ég setti upp læsta bloggsíðu er vegna þess að ég mátti ekki blogga án þess að fyrrv var að skipta sér að mínu lífi.. og hananú;)
Þess vegna bið ég ykkur sem hafa fengið leyniorðið að vinsamlegast að halda því bara fyrir ykkur;) takk...
Allavegana;) rosa stuð um helgina ákvað að fara suður svona alltíeinu:) byrjaði á því að fara til Beggu og fór með henni til vinkonu hennar og byrjuðum að hella í okkur:) híhí... Svo var mér skutlað í partý til Óskars og félaga sem var svaka stuð;);) Og svo enduðum við á Hápunktinum í svaka stuði.... vorum nú samt ekki mikið lengi þar, þar sem okkur var hent út.... og OKKUR var hent út... helvítis fantar.... Ógeðslega þunn í gær og þurfti nú samt að keyra yfir 300 km norður.... issipiss;)
Var að koma heim rétt áðan, var send heim úr vinnunni takk fyrir... þeir hafa víst ekkert að gera við mig þegar ég er orðin veik, þannig ég er betur sett heima uppí rúmi:S
12. nóvember 2007 klukkan 08:55
Aldís Ólöf Júlíusdóttir 2 athugasemdir